Hvernig hætti ég í áskrift?

Til þess að hætta í fastri áskrift ferðu í valmyndina neðst til vinstri og smellir á Minn aðgangur. Þar smellirðu á hnappinn Hætta í áskrift. Við það hefurðu aðgang að Málstað út það tímabil sem þú hefur greitt fyrir.

Ef þú skiptir út fastri áskrift að Málstað yfir í áskrift að Snöru eða Netskrafli heldur þú fríðindum úr fyrri áskriftarleið þar til áskriftartímabili lýkur, en þá tekur uppsögnin gildi og ný áskrift hefst. Ef skipt er úr áskrift að Snöru eða Netskrafli yfir í aðra einstaklingsáskrift taka breytingarnar gildi samstundis, þar sem ný eða meiri fríðindi fylgja nýrri áskriftarleiðinni.

Í frjálsri áskrift geta eigendur og stjórnendur áskriftar nálgast hópstjórnborðið í notendavalmyndinni niðri til vinstri. Þú getur séð upplýsingar um þína áskrift og næsta reikning með því að smella á spjaldið Núverandi áskriftarleið. Þar getur þú einnig hætt í áskrift. Notendur í hópnum munu áfram hafa aðgang að Málstað þar til í lok áskriftartímabils, en þá tekur uppsögnin gildi og krafa um lokagreiðslu er stofnuð. Eftir það hafa notendur hópsins ekki aðgang að Málstað í gegnum hópinn. Hafðu samband við malstadur@mideind.is ef þú vilt endurvekja ákveðinn hóp og frjálsa áskrift.

Nema við tilgreinum annað, færð þú ekki endurgreiðslu eða inneign fyrir daga á milli þess dags sem þú hættir við og síðasta dags áskriftartímabilsins.

Vonandi sjáum við þig aftur síðar!