Hvernig nota ég nemendaafslátt?

Við bjóðum afslátt fyrir félagsfólk allra nemendafélaga í framhaldsskólum og háskólum. Afslátturinn á við fasta áskrift og gildir yfir skólaárið. Svona virkjarðu hann:

1. Hafðu samband við þitt nemendafélag og fáðu afsláttarkóðann.

2. Farðu inn á vefslóðina málstaður.is/áskrift.

3. Ef þú ert þegar notandi getur þú skráð þig inn. Annars þarft þú að fara í gegnum nýskráningarferlið. Þá smellirðu á Nýskráning í hliðarstikunni neðst til vinstri.

4. Smelltu á græna takkann Gerast áskrifandi undir Föst áskrift.

5. Settu inn greiðsluupplýsingar í sprettigluggann. Athugaðu að ekkert er tekið út af kortinu í þessu skrefi.

6. Í næsta skrefi þarf að smella á Nota afsláttarkóða, setja inn kóðann í textaboxið og smella svo á svörtu örina. Við það ætti upphæðin að breytast.

7. Smelltu þá á svarta takkann til að ljúka greiðsluferlinu og áskriftin þín er virk!