Hvernig nýskrái ég mig?

Þegar Málstaður er notaður í fyrsta sinn þarf að skrá sig inn í kerfið.

Farðu á málstaður.is og smelltu á Nýskráning í notendavalmyndinni neðst til vinstri. Þú getur valið um að skrá þig inn með netfangi og lykilorði, eða að fara í gegnum innskráningarferli Google eða Microsoft. Ljúktu ferlinu þar og allt ætti að vera klappað og klárt! Þú getur kynnt þér ólíkar áskriftarleiðir á áskriftarsíðunni okkar.