Hvernig sé ég hvað ég hef notað Málstað mikið?

Þú getur séð þína notkun í fastri áskrift með því að fara í Minn aðgang í notendavalmyndinni niðri til vinstri.

Í frjálsri áskrift geta eigendur og stjórnendur nálgast hópstjórnborðið í notendavalmyndinni niðri til vinstri. Þú getur séð yfirlit yfir notkun hópsins í núverandi mánuði í spjaldinu Notkun í mánuðinum. Til að sjá notkun í fyrri mánuðum getur þú smellt á mánuðinn fyrir ofan spjaldið og flakkað milli mánaða.