Hvernig set ég Málstað á heimaskjáinn minn?

Málstaður er vefsíða, ekki forrit sem þú hleður niður úr App Store eða Google Play. Þú getur þó bætt Málstað, eða ákveðinni lausn eins og Hreimi eða Málfríði, við heimaskjáinn í símanum þínum sem flýtileið. Flýtileiðin opnast í vafranum þínum, alveg eins og venjuleg vefsíða, en birtist með eigin merki innan á heimaskjánum eins og forrit.

Athugið að flýtileiðin er bundin við þá síðu sem þú varst á þegar þú bættir henni við. Ef þú vilt flýtileið beint inn í Hreim, farðu fyrst á þá síðu áður en þú fylgir skrefunum hér að neðan.

Á iPhone (Safari)

  1. Opnaðu síðuna sem þú vilt bæta við í Safari, til dæmis malstadur.is/hreimur fyrir Hreim.

  2. Smelltu á deilitáknið (ferningur með ör upp úr) neðst í vafraglugganum.

  3. Skrunaðu niður og veldu Setja á upphafsskjá (Add to Home Screen).

  4. Smelltu á Bæta við (Add) efst í hægra horni.

Á Android (Chrome)

  1. Opnaðu síðuna sem þú vilt bæta við í Chrome.

  2. Smelltu á þrípunktinn (⋮) efst í hægra horni.

  3. Veldu Setja á upphafsskjá (Add to Home screen) og staðfestu.