Hvernig skrái ég mig í áskrift?
Farðu á áskriftarsíðuna með því að smella á Áskriftarleiðir í notendavalmyndinni neðst til vinstri.
Þar getur þú skoðað ólíkar áskriftarleiðir og borið þær saman með því að smella á Sjá nákvæman samanburð neðst á síðunni.
Þú getur valið á milli fastrar áskriftar, ef þú vilt fyrirsjáanlegt verð, og frjálsrar áskriftar, þar sem þú borgar fyrir fjölda notenda í hóp og svo fyrir notkun. Einnig er hægt að kaupa fasta áskrift að Snöru eða Netskrafli sérstaklega.
Þegar þú smellir á Stofna áskrift fyrir frjálsa áskrift færist þú á aðra síðu þar sem þú slærð inn viðeigandi upplýsingar. Þú getur valið um að borga með greiðslukorti eða að fá reikning.
Að því loknu ertu komin/nn/ð með aðgang að Málstað og getur notað Hópstjórnborðið (aðgengilegt undir notendavalmyndinni í neðra vinstra horninu) til að stjórna aðgangnum.
Athugaðu að þú getur verið bæði með fasta og frjálsa áskrift. Hægt er að flakka á milli hama undir notendavalmyndinni í neðra vinstra horninu. Ef þú vilt að frjálsa áskriftin komi í stað fastrar geturðu sagt föstu áskriftinni upp undir Minn aðgangur.