Hvernig uppfæri ég kortaupplýsingar?
Til þess að uppfæra kortaupplýsingar ferðu í valmyndina neðst til vinstri og smellir á Minn aðgangur. Þar smellirðu á hnappinn Stjórna greiðslum. Við það ferðu inn á greiðslugátt þar sem þú getur meðal annars uppfært kortaupplýsingar þínar. Ef kortið á að vera aðalgreiðslumáti þarftu að taka það sérstaklega fram. Hægt er að stilla það eftir á með því að fara undir Greiðsluupplýsingar og smella á það kort sem á að nota sem aðalgreiðslumáta.