Hvernig virkja ég tveggja þátta auðkenningu?

Tveggja þátta auðkenning (e. two factor authentication, 2FA) er valkvæð leið til að auka öryggi aðgangsins þíns. Þegar hún er virk þarftu, til viðbótar við lykilorðið þitt, að slá inn sex stafa kóða úr auðkennisforriti í símanum þínum í hvert sinn sem þú skráir þig inn.

Hvaða forrit get ég notað?

Þú þarft auðkennisforrit (e. authenticator app) í símanum þínum. Málstaður notar staðlaða tækni (TOTP) sem virkar með flestum vinsælum forritum af þessu tagi, til dæmis Google Authenticator eða Microsoft Authenticator. Bæði forritin eru frí og fást í App Store (iPhone) og Google Play (Android).

Svona virkjar þú tveggja þátta auðkenningu

  1. Smelltu á notandanafnið þitt efst í haus síðunnar og veldu Minn aðgangur.

  2. Undir Tveggja þátta auðkenning smelltu á Virkja.

  3. Skannaðu QR kóðann sem birtist með auðkennisforritinu þínu. Ef þú getur ekki skannað kóðann, smelltu á Getur þú ekki skannað? Smelltu hér til að sýna leynikóða og sláðu leynikóðann inn í forritið handvirkt í staðinn.

  4. Sláðu sex stafa kóðann sem forritið birtir inn í gluggann og smelltu á Staðfesta.

Frá og með næstu innskráningu verður þér bætt við að slá inn kóða úr forritinu eftir að þú slærð inn lykilorðið þitt.

Hvað gerist ef ég kemst ekki í auðkennisforritið mitt?

Það er ekki í boði að nota varakóða til að komast inn án forritsins. Ef þú týnir eða skiptir um síma og kemst þar af leiðandi ekki í auðkennisforritið þitt, hafðu samband við malstadur@mideind.is.

Til að slökkva á tveggja þátta auðkenningu, farðu aftur í Minn aðgangur og smelltu á Slökkva. Þú þarft að slá inn gildan kóða úr auðkennisforritinu til að staðfesta að það sért þú.