Netþjónar Miðeindar eru hýstir hjá vinnsluaðilum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Notandaupplýsingar, svo sem auðkenni eða tölvupóstföng, eru aldrei sendar með beiðnum til þriðju aðila. Lista yfir vinnsluaðila hverju sinni má fá með fyrirspurn á [email protected] en almennar upplýsingar um vinnsluaðila má finna í persónuverndarstefnu okkar. Gögn verða ekki afhent úr hendi Miðeindar til þriðja aðila nema lög áskilji slíka afhendingu.