Hvaða risamállíkön eru best í íslensku?
Miðeind heldur úti stigatöflu sem metur frammistöðu risamállíkana þegar kemur að getu í íslensku máli og menningu. Þar getur þú séð hvernig ólík líkön standa sig í ólíkum mæliprófum.
Við útbjuggum mæliprófin og stigatöfluna í tvíþættum tilgangi. Mæliprófin hjálpa alþjóðlegum fyrirtækjum sem þróa risamállíkön að meta árangur sinna líkana þegar kemur að íslensku. Stigataflan hefur nýst vel til að veita þeim aðhald og þrýsta á þau að gera betur, sérstaklega þegar líkönum fer aftur í árangri miðað við forvera sína.
Upplýsingarnar skipta líka miklu fyrir íslenskan almenning og atvinnulíf til að vita hvaða líkan hentar best fyrir þeirra þarfir og sem grunnur að ítarlegri lausnum.
Á stigatöflunni má finna líkön af ýmsu tagi, bæði opin og lokuð. Við fylgjumst vel með þegar ný líkön koma fram á sjónarsviðið og uppfærum stigatöfluna eftir þörfum. Ef þú hefur ábendingar um líkön sem þér finnst vanta á stigatöfluna þiggjum við þær með þökkum á malstadur@mideind.is.