Andstæðingur fékk að leggja niður orðið X en ég finn það ekki í BÍN. Af hverju?
Auk orða sem eru í megingrunni BÍN leyfir Netskrafl:
Óbeygjanleg orð (smáorð, forsetningar, atviksorð).
Spurnarmyndir sagna í eintölu (“Fórstu út að borða í kvöld?”).
Tveggja stafa orð af lista Skraflfélags Íslands, sem eru ekki öll í BÍN.
Örfá vel þekkt orð sem hefur verið bætt handvirkt við orðalista Netskrafls enda vantar þau augljóslega í BÍN.
Það er algild regla að ef andstæðingur, mennskur eða þjarki, fær að leggja niður orð þá mátt þú það líka - og öfugt. Sami orðagrunnur gildir fyrir alla, alltaf!