Andstæðingurinn hefur ekki leikið í marga daga. Hvernig losna ég við „dauðar viðureignir“?
Þú getur þvingað andstæðing til uppgjafar þegar liðnir eru 14 dagar án leiks í viðureign. Þegar það gerist tapar sá óvirki öllum stigum sínum, og viðureigninni væntanlega þar með. Þú heldur þínum stigum hins vegar óskertum.
Eftir 12 daga án leiks birtist rautt stundaglas við viðureignina í viðureignalista óvirka leikmannsins. Hann hefur þá tvo sólarhringa til að bregðast við. Geri hann það ekki birtist stundaglasið einnig hjá þér. Ef þú opnar viðureignina með því að smella á hana sérðu hnapp neðst á síðunni, fyrir neðan borðið, sem á stendur “Þvinga til uppgjafar”:
Ef þú smellir á hnappinn hefur þú sigrað með þvingaðri uppgjöf. Engin tímamörk eru á slíkri þvingun, ef stundaglasið er komið upp á annað borð.