Gáta dagsins
Gáta dagsins er dagleg krossgátuþraut, svipuð skrafli, þar sem þú reynir að finna stigahæsta orðið sem hægt er að mynda með gefnum stöfum. Ný gáta birtist á miðnætti.
Hvernig á að spila
Þú færð borð með allmörgum stöfum sem þegar hafa verið lagðir.
Neðst á skjánum eru stafaflísar sem þú getur notað til að mynda orð.
Dragðu flísar á borðið til að mynda orð, annaðhvort lárétt eða lóðrétt.
Orðin verða að tengjast við stafi sem fyrir eru á borðinu.
Þú sérð jafnóðum hvort lögnin á borðinu er gild og hversu mörg stig hún gefur.
Þú getur prófað eins mörg orð og þú vilt - besta skorið þitt er vistað.
Stigagjöf
Þú færð stig fyrir hvern staf í orðinu, auk bónusstiga fyrir lengri orð:
Hver stafur gefur 1-10 stig eftir gildi hans.
Orð sem nota allar 7 stafaflísarnar gefa 50 stiga bónus.
Sumir reitir á borðinu
tvöfalda eða
þrefalda stafgildið.Sumir reitir
tvöfalda eða
þrefalda heildarorðgildið.
Hitamælir
Hitamælirinn hægra megin við borðið (sést ekki á farsímum) sýnir:
Besta mögulega lögn: Hæstu stig sem hægt er að ná á þessu borði.
Besta skor dagsins: Hæstu stig sem einhver leikmaður hefur náð í dag.
Þín bestu orð: Orðin sem þú hefur lagt og stigin fyrir þau.
Þú getur smellt á orð á hitamælinum til að fá þá lögn aftur á borðið.
Ábendingar
Reyndu að nota dýra stafi (eins og X, Ý, Þ) á tvöföldunar- eða þreföldunarreitum.
Lengri orð gefa mun fleiri stig vegna bónussins.
Þú getur dregið allar flísar til baka með bláa endurkalls-hnappnum.
Ný gáta birtist á hverjum nýjum degi - klukkan 00:00!
Eldri gátur og lausnir
Þú getur flett fram og til baka í eldri gátum með örvunum sitt hvoru megin við dagsetninguna.
Til að sjá lausnina á eldri gátu smellirðu á græna hringinn með hámarks-skorinu. Þá birtist lausnarorðið á borðinu.
Um leikinn
Gáta dagsins er systkini Netskrafls, hins sívinsæla íslenska krossgátuleiks á netinu. Leikurinn er þróaður af Miðeind ehf.