Hvað er „vinur Netskrafls“?

Netskrafl hefur frá upphafi árið 2015 verið smíðað og rekið í sjálfboðavinnu, og ætíð hefur verið unnt að skrafla ókeypis.

Rekstur og viðhald kerfisins er hins vegar ekki ókeypis. Því býðst skröflurum að gerast vinir Netskrafls og leggja lága upphæð - 790 kr - í púkkið mánaðarlega, til að halda þessari skemmtilegu og skerpandi dægradvöl gangandi.

Í þakklætisskyni njóta vinir Netskrafls eftirfarandi fríðinda:

  • Ótakmarkaður fjöldi viðureigna í gangi samtímis, í stað 3 að hámarki.

  • Skrafl við alla fjóra þjarkana, ekki aðeins þá tvo léttustu.

  • Aðgangur að yfirliti í lok viðureignar, sem sýnir bestu leiki sem mögulegir voru í hverri stöðu.

  • Þeir geta skorað á aðra leikmenn í keppnisham með handvirkri véfengingu án „græna þumalsins“.

Þú getur gerst áskrifandi (vinur Netskrafls!) með því að smella hér. Áskrift að Netskrafli einu og sér er að finna um miðbik síðunnar. Annar möguleiki er að gerast áskrifandi að Málstað öllum - sem innifelur Netskrafl auk fjölbreyttra máltækni-verkfæra Miðeindar.