Hvað komast mörg á stigatöfluna í Gátu dagsins?
Stigataflan í Gátu dagsins sýnir þá 50 leikmenn sem hafa fundið stigahæstu lagnirnar. Innan hvers skors er leikmönnum raðað í tímaröð, þ.e. sá sem fyrstur náði tilteknum stigafjölda er efstur. Það þýðir síðan að ef 50 eða fleiri leysa gátuna þá er allur listinn raðaður eftir því hversu fljótir leikmenn voru að finna lausnina.