Hvaða orð eru leyfð í Netskrafli og af hverju?
Netskrafl leyfir eftirfarandi orð:
Orðmyndir sem finna má í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN) (sjá aðra spurningu).
Óbeygjanleg orð (m.a. atviksorð, forsetningar og smáorð) af orðalista sem ekki er í BÍN sjálfri en má nálgast sérstaklega á vef BÍN.
Spurnarmyndir sagna í eintölu (“Borðaðirðu kvöldmatinn snemma?”) sem ekki eru í BÍN sjálfri en nálgast má sérstaklega á vef BÍN.
Orð sem eru á tveggja stafa orðalista Skraflfélags Íslands, eins og hann var ákveðinn af Orðanefnd þess í september 2015.
Örfá vel þekkt orð sem bætt hefur verið handvirkt við orðagrunn Netskrafls vegna þess að þau vantar augljóslega í BÍN.
Orð sem eru ekki leyfð í Netskrafli eru m.a.:
Sérnöfn hvers konar, þar á meðal þjóðaheiti (Íri, Dani, Breti).
Skammstafanir.
Hljóðlíkingar og dýrahljóð.
Erlend orð og slettur.
Fornt og úrelt mál.
Samsett orð sem ekki eru í BÍN.
Spurnarmyndir sagna í fleirtölu (“Borðuðuði kvöldmatinn snemma?”).
Tveggja stafa orð önnur en þau sem eru á orðalista Skraflfélags Íslands.
Örfáar orðmyndir sem hafa verið felldar niður handvirkt úr orðagrunni Netskrafls vegna þess að þær eru augljóslega villur í BÍN.
Uppfærsla á orðalista Netskrafls er sótt til BÍN á nokkurra mánaða fresti.
Á vegum Skraflfélags Íslands er starfandi Orðanefnd. Hlutverk hennar er að leggja meginlínur um leyfileg orð í íslensku skrafli, halda við orðalistum, taka við ábendingum og úrskurða í álitamálum. Orðagrunnur Netskrafls er og verður uppfærður í samræmi við niðurstöður Orðanefndar hverju sinni.