Hvar sé ég Elo-stigin?

Þú sérð þín eigin Elo-stig undir flipanum Ferill. Þau eru einkennd með blárri kórónu.

Elo-stigin eru vinstra megin, hjá kórónunni - þau eru 1170 í þessu dæmi. Leikmaðurinn hefur lokið 15 viðureignum, unnið 40% þeirra og fengið að meðaltali 91 stig í hverri viðureign.

Elo-stig 100 efstu leikmanna má sjá undir flipanum Andstæðingar ef smellt er á hnappinn Topp 100. Unnt er að sjá Elo-stig sem byggja eingöngu á viðureignum milli mennskra leikmanna, eða stig sem reiknuð eru fyrir allar viðureignir, að þjörkum meðtöldum.