Hver er munurinn á þjörkunum - Fullsterkum, Miðlungi, Hálfdrættingi og Amlóða?
Fullsterkur velur alltaf stigahæsta leik sem mögulegur er í hverri stöðu, og nýtir sér allt orðasafn BÍN. Hann hugsar hins vegar ekki taktískt, og lætur sér til dæmis í léttu rúmi liggja hvort lögn opnar fyrir að andstæðingurinn leggi á appelsínugulan þreföldunarreit.
Miðlungur forðast allra sjaldgæfustu orðin í orðasafninu og velur af handahófi einn af 20 stigahæstu leikjunum sem mögulegir eru. Nánar til tekið leggur Miðlungur ekki niður orð sem merkt eru í BÍN sem forn, úrelt, sjaldgæf eða staðbundin.
Hálfdrættingur leggur aðeins niður tiltölulega algeng orð, velur úr allt að 20 leikjum sem til greina koma, og lagar sig að hluta til að getu andstæðingsins.
Amlóði heldur sig einnig við sömu algengu orðin og Hálfdrættingur, en velur úr allt að 30 leikjum sem koma til álita, og lagar sig að getu andstæðingsins.
Orðaforði Hálfdrættings og Amlóða er um það bil fjórðungur af BÍN. Þótt orðaforði þeirra sé takmarkaður getur þú eftir sem áður lagt niður öll leyfileg orð gegn þeim.