Hvernig deili ég árangri mínum í Gátu dagsins?

Þegar þú finnur stigahæstu lögnina í Gátu dagsins birtist gluggi sem óskar þér til hamingju. Þar sérðu skorið þitt, orðið sem þú lagðir niður og textann sem þú getur deilt. Textinn segir að þú hafir leyst gátuna og hvað þú varst númer í röðinni þann daginn, en ekki orðið sjálft, svo þú ljóstrar engu upp fyrir öðrum.

Smelltu á Afrita texta til að afrita textann á klippispjaldið og límdu hann svo inn á samfélagsmiðla, í spjall eða í tölvupóst. Í síma og spjaldtölvu birtist einnig hnappurinn Deila sem opnar deilingarvalmynd tækisins.