Hvernig eru stigin fyrir niðurlögn reiknuð?
Stig fyrir hvern leik eru reiknuð með sama hætti og í hefðbundnu borðskrafli. Meginreglurnar eru:
Lögð eru saman stafgildi (stig) flísanna í öllum heilum orðum sem niðurlögn þín myndar, hvort sem það eru ný orð eða viðbætur við orð sem fyrir voru á borðinu. Orð geta myndast bæði lárétt og lóðrétt, “þvers og kruss”. Öll orð verða að sjálfsögðu að vera leyfileg.
Ef þú leggur flís á
ljós-sægrænan eða
sægrænan reit margfaldast stafgildi þeirrar flísar, þ.e. tvöfaldast á ljós-sægrænum reit og þrefaldast á sægrænum. Hin margfölduðu stig telja bæði í láréttu og lóðréttu orði ef reiturinn er hluti af tveimur nýmynduðum orðum. Ef þú nærð til dæmis að leggja niður É, sem hefur stafgildi 7, á sægrænan reit (þrefalt stafgildi) þannig að það sé hluti af tveimur orðum, færðu samtals 7 x 3 x 2 = 42 stig bara fyrir É-ið eitt og sér - og þá er eftir að telja hina stafina.Ef þú leggur flís á
ljós-appelsínugulan eða
appelsínugulan reit margfaldast stigagildi alls orðsins sem flísin er hluti af, þ.e. tvöfaldast á ljós-appelsínugulum og þrefaldast á appelsínugulum. Margföldunin gildir bæði fyrir lárétt og lóðrétt orð ef reiturinn er hluti af tveimur nýmynduðum orðum.Fyrir hvert nýmyndað orð eru stafgildi, einföld eða margfölduð (á ljós-sægrænum eða sægrænum reit) reiknuð fyrst og lögð saman. Að því loknu er orðgildið sem þannig fæst margfaldað upp ef nýjar flísar í orðinu eru á ljós-appelsínugulum eða appelsínugulum reit. Athugaðu að orð getur legið yfir tvo margföldunarreiti, sem gefa þá samtals fjórfalt eða jafnvel nífalt orðgildi.
Margföldunarreitir eru aðeins virkir í þeim leik sem flís er lögð á þá. Eftir það missa þeir virkni sína. Flísar sem á þeim eru hafa einfalt stafgildi ef þær eru hluti af orðum sem síðar eru lögð niður.
Auðu flísarnar, sem geta táknað þann bókstaf sem leikmaður kýs, gefa engin (núll) stafastig.
Ef leikmaður nær að setja út alla sjö stafina í rekkanum í einni lögn kallast það bingó og gefur 50 stiga aukabónus.
Ef þú segir pass eða velur að skipta út flísum færðu engin stig í þeirri umferð.