Hvernig fæ ég „gamla útlitið“ á Netskrafli?

Vanafastir notendur Netskrafls vilja margir hverjir halda í „gömlu“ (upphaflegu) litina sem Netskraflið notaði fyrstu 10 ár ævi sinnar. Leiðin til þess er að opna notandaupplýsingarnar og velja rofann sem heitir „eldri litasamsetning“:

Um leið og rofinn er valinn breytast litir Netskrafls í „þá gömlu góðu“.