Nýi pokinn
Frá og með október 2015 notar Netskrafl nýjan íslenskan skraflpoka sem búinn var til á vegum Skraflfélags Íslands, til viðbótar þeim eldri og upprunalega.
Hér sést nýi pokinn í myndrænu formi:
(Sömu mynd á PDF-formi til útprentunar má sækja hér)
Á eldri (upphaflega) skraflpokanum voru ýmsir vankantar, eins og gamalreyndir skraflarar kannast við. Í honum voru til dæmis of mörg E sem gefa of fá stig; stafirnir Ú og Ý voru happafengur enda stigaháir en auðvelt að koma þeim út, og svo mætti áfram telja.
Við hönnun nýs skraflpoka var leitast við að gera alla stafi því sem næst jafn ákjósanlega, í þeim skilningi að þeir staldri jafn lengi við í rekka leikmanns að meðaltali. Leitað var að bestu lausn með því að láta tölvu prófa sig áfram í átt að betri poka í yfir tíu milljónum viðureigna. Þess var jafnframt gætt að hæfilegt jafnvægi væri milli sérhljóða og samhljóða, og að dreifing stafanna væri nálægt því sem gerist í íslenskum texta almennt.
Með nýja pokanum er unnt að leggja niður lengri orð að meðaltali, og heppni í stafadrætti skiptir eilítið minna máli en áður. Í honum eru 100 flísar í stað 104 í eldri pokanum, en samanlögð stig flísanna eru jafnmörg.
Gamli pokinn er nú aðeins notaður í viðureign ef hvorugur leikmaður er merktur með nýja pokanum. Þjarkarnir laga sig ætíð að ósk mennska leikmannsins.
Tilkoma nýja pokans hafði engin áhrif á Elo-stig leikmanna eða útreikning þeirra.