Ég er með áskrift að Snöru á snara.is, hvað þýðir það fyrir mig?
Nú er svo komið að eldra viðmóti Snöru á snara.is verður lokað í lok árs 2026 og allir notendur sem eftir eru færast yfir á Málstað. Vefurinn er kominn til ára sinna og því til mikils að vinna að koma notendum í mun stöðugra umhverfi sem vel er haldið við. Þegar að því kemur mun snara.is vísa beint yfir á Málstað og eldri vefurinn hverfur af sjónarsviðinu.
Hægt er að kaupa áskrift að Snöru á áskriftarsíðu Málstaðar, hvort sem er aðeins að Snöru eða að Málstað í heild sinni. Athugið að þá er Snara aðgengileg innan Málstaðar, ekki á snara.is. Snara er hluti af bæði fastri áskrift og frjálsri áskrift að Málstað. Opin orðasöfn Snöru eru svo áfram aðgengileg í ókeypis aðgangi.
Ef langt er eftir af áskriftinni á snara.is eða þú hefur sérkröfur getur þú haft samband við malstadur@mideind.is.