Ég vil frjálsa áskrift sem inniheldur bara Snöru. Hvað geri ég?
Þú getur stofnað áskrift að Snöru og kynnt þér ólíkar áskriftarleiðir á áskriftarsíðunni okkar. Áskrift sérstaklega að Snöru er að finna undir Aðrar áskriftarleiðir. Smelltu á Stofna áskrift og fylgdu flæðinu sem hefst þá.
Ef þú skiptir út fastri áskrift að Málstað yfir í áskrift að Snöru eða Netskrafli heldur þú fríðindum úr fyrri áskriftarleið þar til áskriftartímabili lýkur, en þá tekur uppsögnin gildi og ný áskrift hefst. Ef skipt er úr áskrift að Snöru eða Netskrafli yfir í aðra einstaklingsáskrift taka breytingarnar gildi samstundis, þar sem ný eða meiri fríðindi fylgja nýrri áskriftarleiðinni.