Hvernig nýtist Snara mér?
Snara er yfirgripsmikið orðabókasafn á netinu. Hún hýsir fjölda vandaðra orðabóka sem nýtast þér jafnt í leik og starfi við að finna réttu orðin, dýpka málskilning og þýða milli tungumála. Snara hefur bæði eigið viðmót í Málstað og er samþætt inn í aðrar lausnir Málstaðar svo þú getur flett upp í sjálfu skriftarferlinu.
Það sem þú getur gert beint í Snöru
Snörp og nákvæm uppfletting
Þú slærð inn orð eða orðasamband og færð samstundis niðurstöður úr orðabókum Snöru.
Leit með algildistáknum (* og ?)
Ef þú ert óviss með stafsetningu eða vilt finna orð með ákveðinni endingu geturðu notað algildistákn (t.d. finnur mál* orðin mál, málfræði, málstofa og ótal önnur).
Flettulisti eins og í prentaðri bók
Í stað þess að gefa þér niðurstöður fyrir stakt orð geturðu notað flettulistann til að sjá samhengi færslna í stafrófsröð, sem hjálpar þér að uppgötva ný og skyld hugtök.
Upplýsingar af ólíkum toga
Þú getur til dæmis kynnt þér merkingu orða, og fengið útskýringar og notkunardæmi. Þú getur flett upp orðum á ýmsum tungumálum og fengið íslenska þýðingu, og svo öfugt. Þú getur fundið samheiti til að skrifa blæbrigðaríkari texta.
Flóknari verkflæði og samspil við aðrar lausnir Málstaðar
Snara er lykilþáttur í því að fínpússa texta þegar þú vinnur með aðrar lausnir í Málstað.
Við þýðingar
Þegar þú þýðir texta í Erlendi getur þú tvísmellt á hvaða orð sem er í ritlinum eða leitað beint í hliðarstiku Erlends til að sjá ólíkar merkingar og samhengi án þess að yfirgefa síðuna.
Við textagerð og yfirlestur
Þegar þú færð ábendingar um málfar eða stafsetningu í Málfríði getur þú leitað beint í Snöru til að sjá málfræðiupplýsingar, setninganotkun og samheiti til að finna betra eða blæbrigðaríkara orðalag.