Hvernig leita ég í Snöru?
Þú slærð einfaldlega inn orðið eða orðasambandið sem þú vilt finna í leitarreitinn og niðurstöðurnar birtast jafnóðum. Snara leitar sjálfkrafa í öllum þeim orðabókum sem þú hefur aðgang að og sýnir þér niðurstöðurnar fljótt og örugglega. Ef færsla finnst úr orðabók sem þú hefur ekki aðgang að birtist tilkynning efst um þær. Þú getur kynnt þér ólíkar áskriftarleiðir Málstaðar á áskriftarsíðunni okkar til að fá aðgang að öllum orðabókum.
Þú getur notað algildistákn (* og ?) til að víkka út leitarniðurstöður þegar þú ert ekki viss um stafsetningu eða vilt finna orð með ákveðna merkingu.
Þú getur síað niðurstöður til að þrengja leitina. Þú getur leitað eftir tungumáli eða í stökum orðabókum til að finna það sem þú leitar að.
Færslur birtast beint fyrir neðan leitarstikuna og eru merktar þeirri orðabók sem þær eru úr. Ef það sem þú leitaðir að birtist í mörgum færslum getur þú skrunað hraðar yfir niðurstöður í hægri hliðarstikunni til að finna það sem þú leitar að. Ef þú smellir á færslu þar færistu hratt að réttri færslu í færslulistanum.
Í vinstri hliðarstikunni getur þú séð allar flettur í orðabókum Snöru í réttri röð. Ef þú smellir á flettu þar færðu upp allar viðeigandi færslur í orðabókum Snöru í færslulistann.