Nýjungar

Hér segjum við frá því sem hefur bæst við og breyst á Málstað.

Október 2026

Leit að hestur í Snöru: samheitin hross, drösull, gandur og fleiri í dálki til hægri og undir hverri merkingu í Samheitum Miðeindar.
SnaraNýtt

Samheiti við hlið leitarniðurstaðna

Samheiti leitarorðsins birtast við hlið niðurstaðna og undir hverri merkingu í Samheitum Miðeindar.

Samheitunum er safnað úr þeim völdu orðabókum sem innihalda íslensk samheiti. Smelltu á samheiti til að sjá færslu þess án þess að yfirgefa leitarniðurstöðurnar.

Prófaðu
Ítarleg leit í Snöru: orð sem byrjar á h, endar á ur og er sex stafir, sem gefur leitarstrenginn h???ur.
SnaraNýtt

Leitaðu með mynstri

Með ítarlegri leit í Snöru finnur þú orð eftir upphafi, innihaldi, endi og fjölda stafa, til dæmis fyrir krossgátur og rím.

Smelltu á táknið hægra megin í leitarreitnum. Snara setur saman leitarstrenginn jafnóðum, til dæmis „h???ur“ fyrir sex stafa orð sem byrja á h- og enda á -ur. Þú finnur ábendingar um leit á sama stað.

Prófaðu
Orðstöðulykill verka Halldórs Laxness fyrir skemmtan: beygingarmyndir með fjölda dæma og línur úr Atómstöðinni og Gerplu.
SnaraNýtt

Sjáðu dæmi um notkun orðsins í íslenskum bókmenntum

Orðstöðulyklar sýna hvar og hvernig orð kemur fyrir í Íslendingasögunum og verkum Halldórs Laxness.

Orðstöðulyklarnir eru í eigin flokki í orðabókavalinu. Í færslu orðs sérðu beygingarmyndir þess og hverja línu sem það kemur fyrir í, flokkaðar eftir verkum. Smelltu á línu til að opna bókarsíðuna þar sem orðið birtist.

Orðstöðulyklarnir eru aðeins aðgengilegir áskrifendum.

Prófaðu
Færslan hross úr Samheitum Miðeindar opin í spjaldi yfir færslunni hestur, með samheitum og hnappnum Fletta upp.
SnaraEndurbætt

Skoðaðu millivísanir án þess að missa þráðinn

Smelltu á millivísun í færslu til að skoða færsluna sem hún vísar á í spjaldi, án þess að yfirgefa leitarniðurstöðurnar.

Millivísanir inni í spjaldinu opnast í sama spjaldi og þú kemst til baka með örinni. „Fletta upp“ leitar að orðinu. Í síma opnast spjaldið neðan frá.

Prófaðu

Umfangsminni endurbætur og lagfæringar

  • SnaraEndurbætt

    Leitarniðurstöður eru nákvæmari fyrir margorða leitarfærslur.

  • SnaraEndurbætt

    Snara man hvaða orðabækur þú valdir á hverjum vafraflipa fyrir sig.

  • SnaraEndurbætt

    Texti í Snöru afritast nú eðlilega í aðra ritla.