Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðingar milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
Áskriftarleiðir
Miðeind ehf.

Fiskislóð 31, 101 Reykjavík

mideind.is[email protected]
Um MiðeindGreinar og pistlarStefna og tilgangurRannsóknir og tækni
ÁskriftNotkunarskilmálarPersónuverndHjálparmiðstöð

© 2026 Miðeind ehf.

  1. Skilmálar
  2. Notkunarskilmálar frjálsrar áskriftar

Miðeind ehf.

MÁLSTAÐUR

NOTKUNARSKILMÁLAR FRJÁLSRAR ÁSKRIFTAR

13. mars 2026

Með því að nota Málstað samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

1. Inngangur

Við, Miðeind ehf., Fiskislóð 31, 101 Reykjavík, veitum þér, með fyrirvara um að þú fylgir þessum notkunarskilmálum (hér nefndir „Skilmálar“) og öllum viðeigandi lögum, leyfi til að nálgast og nota vefinn Málstað (hér nefndur „Þjónustan“), eins og nánar er lýst í þessum Skilmálum.

Málstaður innifelur eftirfarandi þjónustur Miðeindar:

  1. Málfríður — yfirlestrarþjónusta, þjónusta til umbreytingar texta og samheitaorðabók.

  2. Hreimur — þjónusta sem breytir tali í texta eða skjátexta.

  3. Erlendur — þjónusta sem þýðir texta og skjátexta milli tungumála.

  4. Snara — leitarþjónusta fyrir safn rafrænna orðabóka og uppflettirita.

  5. Netskrafl — safn orðaleikja.

2. Skráning og lágmarksaldur

Þér ber að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar þegar þú skráir þig fyrir aðgangi að Þjónustunni.

Þú verður að vera fjárráða og að minnsta kosti 18 ára að aldri til að samþykkja þessa Skilmála og nota Þjónustuna.

Þú mátt ekki deila aðgangsupplýsingum þínum eða gera aðgang þinn aðgengilegan öðrum. Þú ert ábyrg/ur/t fyrir allri notkun sem á sér stað undir þínum aðgangi. Þú mátt ekki deila aðgangi þínum með neinum öðrum.

3. Persónuvernd þín

Við notum aðeins persónuupplýsingar sem við söfnum í gegnum notkun þína á Þjónustunni á þann hátt sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar.

4. Stuðningur við Þjónustuna

Stuðningur. Ef þú vilt fræðast meira um Þjónustuna eða lendir í vandræðum við notkun hennar, vinsamlegast skoðaðu stuðningsefni í Hjálparmiðstöðinni okkar.

Að hafa samband við okkur (þar með talið með kvartanir). Ef þú telur að Þjónustan sé gölluð eða ranglega lýst eða vilt hafa samband við okkur af öðrum ástæðum, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á [email protected].

Hvernig við munum hafa samband við þig. Ef við þurfum að hafa samband við þig, munum við gera það í gegnum vefsíðu okkar á https://málstaður.is og/eða með tölvupósti.

5. Gjöld

Með því að stofna frjálsa áskrift að Þjónustunni skuldbindur þú þig til að greiða áskriftargjald og notkunargjald, eins og er nánar tilgreint hverju sinni í verðskrá okkar, en hún er birt á síðunni https://málstaður.is/askrift. Áskriftargjald felur í sér grunnaðgang að Málstað og miðast við fjölda notenda. Notkunargjald bætist við fyrir þær þjónustur Málstaðar sem greitt er fyrir eftir notkun, bæði á vef og alla notkun á API tengingum. Greitt er fyrir Þjónustuna eftir á, og miða gjöld við undangengið áskriftartímabil. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða að fá reikning í heimabanka. Rafrænir reikningar hafa 14 daga greiðslufrest.

Þú getur stofnað margar frjálsar áskriftir og stillt eftir þínum þörfum, hvort sem er varðandi notendur í hópnum, notkunarhámark, greiðanda/greiðslumáta eða annað. Greitt er fyrir hverja áskrift.

Við áskiljum okkur rétt til að breyta gjöldum hvenær sem er, en breytingar taka gildi við mánaðamót. Gjöld sem þegar hafa verið greidd verða ekki endurgreidd, af neinum ástæðum.

6. Hugverkaréttindi

Öll hugverkaréttindi tengd Þjónustunni, þar með talið en ekki takmarkað við höfundarrétt og vörumerki, eru í eigu okkar.

7. Notkunartakmarkanir

Þú mátt ekki nota Þjónustuna fyrir neina ólöglega, skaðlega eða misneytandi starfsemi. Til dæmis er þér óheimilt að:

  • Nota Þjónustuna á hátt sem brýtur gegn, misnotar eða skerðir réttindi annarra (þar með talið hugverkaréttindi).

  • Þýða, sameina, aðlaga, breyta eða umbreyta, að öllu leyti eða að hluta, Þjónustunni, né leyfa Þjónustunni eða hluta hennar að sameinast eða verða hluti af öðrum hugbúnaði eða vefjum, nema um sé að ræða hluta sem gefnir eru út undir opnum leyfum eða að því marki sem nauðsynlegt er til að nota Þjónustuna á tækjum eins og leyft er í þessum Skilmálum.

  • Ráðast í að eða aðstoða aðra við að afkóða, afþýða, búa til afleidd verk eða endurskapa frumkóða eða undirliggjandi þætti Þjónustunnar, þar með talið eða byggt á heild eða hluta Þjónustunnar, né leitast við að gera neitt slíkt nema um sé að ræða hluta sem gefnir eru út undir opnum leyfum.

  • Trufla eða raska Þjónustunni, þar með talið að sniðganga magntakmarkanir eða hömlur eða fara fram hjá verndarráðstöfunum eða öryggisráðstöfunum sem við setjum á Þjónustuna.

  • Nota Þjónustuna á ólöglegan hátt, í ólöglegum tilgangi eða á nokkurn hátt sem er í ósamræmi við þessa Skilmála, eða hegða sér sviksamlega eða í illum tilgangi, til dæmis með því að hakka eða setja inn skaðlegan kóða, svo sem vírusa, trójuhesta eða skaðleg gögn, í Þjónustuna eða keyrsluumhverfi hennar.

  • Nota Þjónustuna á hátt sem gæti skaðað, gert óvirk, ofhlaðið, skert eða stofnað í hættu kerfum okkar eða öryggi eða truflað aðra notendur.

  • Safna eða uppskera upplýsingar eða gögn frá Þjónustunni eða kerfum okkar eða reyna að afkóða sendingar til eða frá netþjónum sem keyra Þjónustuna.

Þú mátt aðeins nýta API tengingu Þjónustunnar í tengslum við eigin rekstur eða til innri nota í hugbúnaðarlausnum þínum, nema um annað sé skriflega samið. Til dæmis er þér óheimilt að:

  • Endurselja, framselja eða leigja aðgang að API tengingunni til þriðja aðila.

  • Nota API tenginguna til þess að byggja upp, bjóða upp á eða starfrækja þjónustu sem er sambærileg eða í beinni samkeppni við kjarnavirkni Þjónustunnar. Þetta á meðal annars við um að bjóða upp á opið viðmót eða vefsíðu þar sem almenningi eða utanaðkomandi notendum er gefinn kostur á að nýta yfirlestur eða aðra virkni hugbúnaðarins í gegnum millilið.

8. Ábyrgð okkar á tapi eða tjóni sem þú verður fyrir

Takmörkun ábyrgðar. Að því marki sem íslensk lög (og önnur viðeigandi lög) leyfa, takmörkum við ábyrgð okkar vegna taps sem þú verður fyrir í tengslum við notkun Þjónustunnar við áskriftargjald sem þú hefur greitt síðustu þrjá mánuði frá þeim tíma sem þú gerir kröfu á hendur okkur. Einnig erum við ekki ábyrg fyrir óbeinu tapi, svo sem tapi á hagnaði, tekjum, viðskiptavild, væntum sparnaði eða viðskiptatækifærum.

Takmarkanir á Þjónustunni. Þó að við gerum eðlilegar ráðstafanir til að uppfæra upplýsingarnar sem Þjónustan veitir, gefum við engar yfirlýsingar, ábyrgðir eða tryggingar, hvort sem þær eru beinar eða óbeinar, um að slíkar upplýsingar séu nákvæmar, heildstæðar eða uppfærðar. Á sama hátt, ef Þjónustan vísar til þriðja aðila eða vöru eða þjónustu þriðja aðila, þýðir það ekki að þriðji aðili sé tengdur eða studdur af Þjónustunni eða að þriðji aðili hafi þá skoðun. Útfall á þjónustu, sem nemur minna en 24 klst. á almanaksmánuði, er ekki afsláttar- eða bótaskylt.

Skylda til að yfirfara. Þér ber að meta niðurstöður sem Þjónustan veitir með tilliti til nákvæmni og hæfis fyrir fyrirhugaða notkun þína. Þú mátt ekki nota slíkar niðurstöður varðandi einstakling í tilgangi sem gæti haft lagaleg eða efnisleg áhrif á þann einstakling, svo sem að taka ákvarðanir um lánshæfi, menntun, atvinnu, tryggingar, lögfræðileg málefni, heilbrigðismál eða aðrar mikilvægar ákvarðanir um hann.

Við berum ekki ábyrgð á atburðum utan okkar stjórnar. Við berum ekki ábyrgð á vanefndum eða töfum á að uppfylla skyldur okkar samkvæmt þessum Skilmálum ef slík vanefnd eða töf stafar af orsökum sem eru utan eðlilegrar stjórnar okkar, þar með talið en ekki takmarkað við náttúruhamfarir, stríð, hryðjuverk, verkföll, aðgerðir stjórnvalda, náttúruhamfarir eða truflanir á internet- eða fjarskiptaþjónustu. Í slíkum tilvikum verður skyldum okkar frestað á meðan orsök varir. Ef óviðráðanlegt atvik varir lengur en 30 daga getur hvor aðili sagt upp viðkomandi þjónustu með skriflegri tilkynningu til hins aðilans. Slík uppsögn samkvæmt þessu ákvæði hefur ekki áhrif á skyldu þína til að greiða fyrir þjónustu sem þegar hefur verið veitt.

9. Uppsögn

Samningur telst kominn á milli lögaðila sem þú ert fulltrúi fyrir og Miðeindar þegar þú hefur stofnað frjálsa áskrift í Málstað og staðfest hana rafrænt á þeim vettvangi. Aðgangur að Þjónustunni er heimilaður þegar frjáls áskrift hefur verið stofnuð.

Við getum að eigin geðþótta bundið enda á rétt þinn til að nota Þjónustuna hvenær sem er. Ef við bindum enda á rétt þinn til að nota Þjónustuna verður þú að hætta allri starfsemi sem heimiluð er af þessum Skilmálum, þar með talið notkun þinni á Þjónustunni.

Þú getur hvenær sem er hætt við greidda áskrift þína. Þú munt áfram hafa aðgang að Þjónustunni þar til í lok áskriftartímabils, en þá tekur uppsögnin gildi og krafa um lokagreiðslu er stofnuð. Nema við tilgreinum annað, færð þú ekki endurgreiðslu eða inneign fyrir daga á milli þess dags sem þú hættir við og síðasta dags áskriftartímabilsins.

10. Framsal

Við getum framselt réttindi okkar og skyldur samkvæmt þessum Skilmálum til annars lögaðila. Við munum upplýsa þig ef þetta gerist og við munum tryggja að framsalið hafi ekki áhrif á réttindi þín.

Þú mátt aðeins framselja réttindi þín eða skyldur samkvæmt þessum Skilmálum til annars aðila ef við samþykkjum það skriflega.

11. Breytingar á Skilmálunum eða Þjónustunni

Við endurskoðum Skilmálana reglulega. Nýjustu útgáfu má sjá á vef Málstaðar hverju sinni, undir vefslóðinni https://málstaður.is/skilmalar.

12. Viðeigandi lög og lögsaga

Um Skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna Skilmálanna, sem ekki er unnt að leysa með farsælum hætti milli aðila, skal mál vegna hans rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.