Miðeind ehf.

MÁLSTAÐUR

NOTKUNARSKILMÁLAR EINSTAKLINGSAÐGANGA

12. október 2026

Með því að nota Málstað samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

1. Inngangur

Við, Miðeind ehf., Fiskislóð 31, 101 Reykjavík, veitum þér, með fyrirvara um að þú fylgir þessum notkunarskilmálum (hér nefndir „skilmálar“) og öllum viðeigandi lögum, leyfi til að nálgast og nota vefinn Málstað (hér nefndur „þjónustan“), eins og nánar er lýst í þessum skilmálum.

Málstaður felur í sér eftirfarandi þjónustur:

  1. Málfríður — yfirlestrarþjónusta og þjónusta til umbreytingar texta.

  2. Hreimur — þjónusta sem breytir tali í texta eða skjátexta.

  3. Erlendur — þjónusta sem þýðir texta eða skjátexta milli tungumála.

  4. Snara — leitarþjónusta fyrir safn rafrænna orðabóka og uppflettirita.

  5. Netskrafl — safn orðaleikja.

2. Aðeins til einkanota

Þjónustan sem veitt er samkvæmt þessum skilmálum er aðeins ætluð einstaklingum.

Þjónusta fyrir lögaðila er veitt samkvæmt sérstökum notkunarskilmálum.

Það er brot á þessum skilmálum ef lögaðili notar þjónustuna með aðgangi sem stofnaður er af einstaklingi. Við áskiljum okkur rétt til að loka öllum aðgangi sem, að okkar mati, er notaður í bága við þetta ákvæði.

Þú mátt ekki deila aðgangsupplýsingum þínum eða gera aðgang þinn aðgengilegan öðrum. Þú berð ábyrgð á allri notkun sem á sér stað með þínum aðgangi. Þú mátt ekki deila aðganginum þínum með neinum öðrum eða nota þjónustuna fyrir hönd annars einstaklings eða aðila.

Þér ber að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar þegar þú skráir þig fyrir aðgangi að þjónustunni.

3. Persónuvernd

Við notum aðeins persónuupplýsingar sem við söfnum í gegnum notkun þína á þjónustunni á þann hátt sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar.

4. Stuðningur við þjónustuna

Ef þú vilt fræðast meira um Þjónustuna eða lendir í vandræðum við notkun hennar skaltu skoða stuðningsefni í Hjálparmiðstöðinni okkar.

Ef þú telur að þjónustan sé gölluð, henni sé ranglega lýst eða ef þú vilt hafa samband við okkur af öðrum ástæðum skaltu senda okkur tölvupóst á malstadur@mideind.is.

Ef við þurfum að hafa samband við þig gerum við það í gegnum vefsíðu okkar á https://málstaður.is og/eða með tölvupósti ef þú hefur gefið okkur upp netfangið þitt og leyfi til að nota það í þeim tilgangi.

5. Gjöld

Ef þú kýst að gerast áskrifandi að Þjónustunni greiðir þú áskriftargjald fyrirfram fyrir notkun þína, eins og nánar er tilgreint hverju sinni í verðskrá okkar sem birt er á síðunni https://málstaður.is/askrift.

Við áskiljum okkur rétt til að breyta gjöldum hvenær sem er. Gjöld sem þegar hafa verið greidd verða ekki endurgreidd af neinum ástæðum.

6. Hugverkaréttindi

Öll hugverkaréttindi tengd þjónustunni, meðal annars höfundarréttur og vörumerki, eru í eigu okkar.

7. Notkunartakmarkanir

Þú mátt ekki nota þjónustuna fyrir neina ólöglega, skaðlega eða misneytandi starfsemi. Til dæmis er þér óheimilt að:

  • Nota Þjónustuna á hátt sem brýtur gegn, misnotar eða skerðir réttindi annarra (þar með talið hugverkaréttindi).

  • Þýða, sameina, aðlaga, breyta eða umbreyta þjónustunni, að öllu leyti eða að hluta, eða láta þjónustuna eða hluta hennar sameinast eða verða hluti af öðrum hugbúnaði eða vefjum, nema að því marki sem nauðsynlegt er til að nota þjónustuna í tækjum eins og leyft er í þessum skilmálum.

  • Afkóða, afþýða, búa til afleidd verk eða endurskapa frumkóða eða undirliggjandi þætti þjónustunnar eða aðstoða aðra við að gera það, þar með talið með því að byggja á heild eða hluta þjónustunnar, eða leitast við að gera neitt slíkt.

  • Trufla eða raska þjónustunni, þar með talið að sniðganga magntakmarkanir eða hömlur eða fara fram hjá verndarráðstöfunum eða öryggisráðstöfunum sem við beitum fyrir þjónustuna.

  • Nota þjónustuna á ólöglegan hátt, í ólöglegum tilgangi eða á nokkurn hátt sem er í ósamræmi við þessa skilmála, eða hegða sér sviksamlega eða með illum ásetningi, til dæmis með því að brjótast inn eða setja inn skaðlegan kóða, svo sem vírusa, trójuhesta eða skaðleg gögn, í þjónustuna eða keyrsluumhverfi hennar.

  • Nota þjónustuna á hátt sem gæti skaðað kerfi okkar, gert þau óvirk, ofhlaðið þau, skert þau eða stofnað þeim eða öryggi þeirra í hættu eða truflað aðra notendur.

  • Safna upplýsingum eða gögnum frá þjónustunni eða kerfum okkar eða reyna að afkóða sendingar til eða frá netþjónum sem keyra þjónustuna.

8. Efni sem þú býrð til

Við geymum ekkert efni varanlega sem þú býrð til þegar þú notar þjónustuna. Hins vegar getum við safnað (i) nafnlausum tölfræðiupplýsingum um notkun þjónustunnar almennt og (ii) athugasemdum og ábendingum sem einstakir notendur veita varðandi þjónustuna.

9. Ábyrgð okkar á tapi eða tjóni sem þú verður fyrir

Takmörkun ábyrgðar: Að því marki sem íslensk lög (og önnur viðeigandi lög) leyfa, takmörkum við ábyrgð okkar vegna taps sem þú verður fyrir í tengslum við notkun þjónustunnar við greiðslur sem við höfum fengið frá þér síðustu sex mánuði frá þeim tíma sem þú gerir kröfu á hendur okkur. Einnig erum við ekki ábyrg fyrir óbeinu tapi, svo sem tapi á hagnaði, tekjum, viðskiptavild, væntum sparnaði eða viðskiptatækifærum.

Takmarkanir á þjónustunni: Þjónustan er veitt eingöngu til einkanota. Þó að við gerum eðlilegar ráðstafanir til að uppfæra upplýsingarnar sem þjónustan veitir gefum við engar yfirlýsingar, ábyrgðir eða tryggingar, hvort sem þær eru beinar eða óbeinar, um að slíkar upplýsingar séu nákvæmar, heildstæðar eða uppfærðar. Ef Þjónustan vísar til þriðja aðila eða vöru eða þjónustu þriðja aðila þýðir það að sama skapi ekki að þriðji aðili sé tengdur þjónustunni eða njóti stuðnings hennar eða að þriðji aðili telji að svo sé.

Þér ber að meta þær niðurstöður sem þjónustan veitir með tilliti til nákvæmni og hæfis fyrir fyrirhugaða notkun þína. Þú mátt ekki nota slíkar niðurstöður varðandi einstakling í tilgangi sem gæti haft lagaleg eða efnisleg áhrif á þann einstakling, svo sem að taka ákvarðanir um lánshæfi, menntun, atvinnu, tryggingar, lögfræðileg málefni, heilbrigðismál eða aðrar mikilvægar ákvarðanir um hann.

Við berum ekki ábyrgð á atburðum utan okkar stjórnar. Við berum ekki ábyrgð á vanefndum eða töfum á að uppfylla skyldur okkar samkvæmt þessum skilmálum ef slíkar vanefndir eða tafir stafa af orsökum sem eru utan eðlilegrar stjórnar okkar, meðal annars vegna náttúruhamfara, stríðs, hryðjuverka, verkfalla, aðgerða stjórnvalda eða truflana á internet- eða fjarskiptaþjónustu. Í slíkum tilvikum verður skyldum okkar frestað á meðan orsök varir. Ef óviðráðanlegt atvik varir lengur en 30 daga getur hvor aðili um sig sagt upp viðkomandi þjónustu með skriflegri tilkynningu til hins aðilans. Slík uppsögn samkvæmt þessu ákvæði hefur ekki áhrif á skyldu þína til að greiða fyrir þjónustu sem þegar hefur verið veitt.

10. Uppsögn

Við getum að eigin geðþótta bundið enda á rétt þinn til að nota þjónustuna hvenær sem er. Ef við bindum enda á rétt þinn til að nota þjónustuna verður þú að hætta allri starfsemi sem heimiluð er í þessum skilmálum, þar með talið notkun þinni á þjónustunni.

Þú getur hvenær sem er hætt við greidda áskrift þína. Þú færð ekki rukkun eftir að þú segir upp greiddri áskrift. Þú hefur áfram aðgang að þjónustunni þar til í lok þess áskriftartímabils sem þú hefur greitt fyrir en þá tekur uppsögnin gildi. Nema annað sé tilgreint færðu ekki endurgreiðslu eða inneign fyrir daga á milli þess dags sem þú hættir við og síðasta dags áskriftartímabilsins.

Ef þú skiptir úr fastri áskrift að Málstað yfir í áskrift að Snöru eða Netskrafli heldurðu fríðindum úr fyrri áskriftarleið þar til áskriftartímabilinu lýkur, en þá tekur uppsögnin gildi og ný áskrift hefst. Ef skipt er úr áskrift að Snöru eða Netskrafli yfir í aðra einstaklingsáskrift taka breytingarnar gildi samstundis, þar sem ný eða meiri fríðindi fylgja nýrri áskriftarleiðinni. Ef þú skiptir úr mánaðarlegri áskrift í árlega áskrift heldurðu þínum kjörum út áskriftartímabilið og áskriftinni verður breytt og hún gjaldfærð þegar mánaðarlegu áskriftinni lýkur.

11. Framsal

Við getum framselt réttindi okkar og skyldur samkvæmt þessum skilmálum til annars lögaðila. Við munum upplýsa þig ef þetta gerist og tryggja að framsalið hafi ekki áhrif á réttindi þín.

Þú mátt aðeins framselja réttindi þín eða skyldur samkvæmt þessum skilmálum til annars aðila ef við samþykkjum það skriflega.

12. Breytingar á Skilmálunum eða Þjónustunni

Við endurskoðum skilmálana reglulega. Nýjustu útgáfu má sjá á vef Málstaðar hverju sinni, á vefslóðinni https://málstaður.is/skilmalar.

13. Viðeigandi lög og lögsaga

Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna skilmálanna, sem ekki er unnt að leysa með farsælum hætti milli aðila, skal mál vegna hans rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.