Vafrinn þinn er of gamall fyrir Málstað. Uppfærðu vafrann í nýjustu útgáfu eða notaðu annan vafra (t.d. Safari, Chrome, Firefox eða Edge).
Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðingar milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
  • Lísa
    Ljóslestur skjala
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
Miðeind ehf.

Fiskislóð 31, 101 Reykjavík

mideind.ismalstadur@mideind.is
Um MiðeindGreinar og pistlarStefna og tilgangurRannsóknir og tækni
ÁskriftNotkunarskilmálarPersónuverndHjálparmiðstöð

© 2026 Miðeind ehf.

Málfríður

Með Málfríði er auðvelt að skrifa góðan texta. Málfríður hjálpar þér að skila faglegum íslenskum texta með því að lagfæra stafsetningu, málfræði, stíl og bjóða upp á samantektir og einfalt mál.

Innskrá
Skjáskot af Málfríði, leiðréttingartóli Miðeindar í Málstað.
Skjáskot af Málfríði, leiðréttingartóli Miðeindar í Málstað.

Málfríður

Með Málfríði er auðvelt að skrifa góðan texta. Málfríður hjálpar þér að skila faglegum íslenskum texta með því að lagfæra stafsetningu, málfræði, stíl og bjóða upp á samantektir og einfalt mál.

Lagfærir stafsetningu, málfræði og stíl tafarlaust
Býr til hnitmiðaðar samantektir úr löngum texta
Snýr texta á einfalt mál
Viðheldur sniði skjala þegar unnið er með ritgerðir eða skýrslur
Leyfir uppflettingar í orðabókum beint úr textanum
Innskrá

Hvernig virkar Málfríður?

Þú getur skrifað beint í ritilinn, límt inn texta eða hlaðið upp skrá. Málfríður greinir textann sjálfkrafa og leggur til úrbætur sem þú getur samþykkt eða hafnað. Með áskrift bætist við textavinnsla á næsta stigi, þar sem þú getur fengið textann á einföldu máli eða í samantekt. Þú getur einnig flett upp í orðabókum Snöru innan Málfríðar, hvort sem er beint í hægri hliðarstikunni eða með því að tvísmella á eitt eða fleiri orð.

Hvernig leysir Málfríður málið?

Áskorun

Illa unninn texti dregur úr trúverðugleika

Málfríður finnur og leiðréttir stafsetningar- og málfræðivillur á augabragði og hjálpar þér að skila fagmannlegum texta.

Áskorun

Það tekur tíma að lesa og skilja flókið efni

Með samantekt Málfríðar getur þú dregið langar skýrslur, fréttir eða vísindagreinar saman í kjarnyrtar, hnitmiðaðar samantektir.

Áskorun

Textinn minn kemur ekki efninu til skila

Einfalt mál Málfríðar hjálpar þér að koma textanum þínum til þíns markhóps á mannamáli.

Áskorun

Illa unninn texti dregur úr trúverðugleika

Málfríður finnur og leiðréttir stafsetningar- og málfræðivillur á augabragði og hjálpar þér að skila fagmannlegum texta.

Áskorun

Það tekur tíma að lesa og skilja flókið efni

Með samantekt Málfríðar getur þú dregið langar skýrslur, fréttir eða vísindagreinar saman í kjarnyrtar, hnitmiðaðar samantektir.

Áskorun

Textinn minn kemur ekki efninu til skila

Einfalt mál Málfríðar hjálpar þér að koma textanum þínum til þíns markhóps á mannamáli.

Svona spilar Málfríður með öðrum lausnum Málstaðar

Inn í Málfríði

  • Málstaður:

    Þú getur skrifað beint í ritil Málfríðar, límt inn texta eða hlaðið upp skrá (.docx, .odt, .md).

  • Málfríður:

    Samantekt Málfríðar tekur við texta úr yfirlestri Málfríðar.

  • Málfríður:

    Einfalt mál Málfríðar tekur við texta úr yfirlestri Málfríðar.

  • Hreimur:

    Málfríður tekur við umritaðri upptöku og lagfærir textann.

  • Erlendur:

    Málfríður tekur við þýðingum á íslensku sem þarf að vinna áfram.

Út úr Málfríði

  • Málstaður:

    Þú getur hlaðið efni í Málfríði niður sem skjali (.docx, .odt, .md).

  • Málfríður:

    Sendu texta úr yfirlestri Málfríðar í samantekt.

  • Málfríður:

    Sendu texta úr yfirlestri Málfríðar í einfalt mál.

  • Snara:

    Þú getur flett í orðabókum Snöru innan Málfríðar, í hliðarstiku eða með tvísmelli á eitt eða fleiri orð.

  • Erlendur:

    Sendu fullbúinn texta úr Málfríði í Erlend til þýðingar á fjölmörg tungumál.

Notkunarleiðir

Ókeypis aðgangur

Þú getur skrifað í ritil og sent allt að 400 stafi í einu í yfirlestur. Þú getur fengið samantekt eða einföldun á texta úr allt að 100.000 stöfum á mánuði. Þú getur sent inn og hlaðið niður skrám. Þú getur flett í opnum orðabókum Snöru innan Málfríðar, í hliðarstiku eða með tvísmelli á eitt eða fleiri orð.

Föst áskrift

Þú getur sent allt að 100.000 stafi í einu í yfirlestur. Þú getur fengið samantekt eða einföldun á texta úr allt að 1 milljón stöfum á mánuði. Þú getur flett í öllum orðabókum Snöru innan Málfríðar, í hliðarstiku eða með tvísmelli á eitt eða fleiri orð.

Frjáls áskrift

Þú getur sent allt að 100.000 stafi í einu í yfirlestur. Ekkert hámark er á samantekt og einföldun heldur er greitt eftir notkun.

Kíktu á Hjálparmiðstöðina ef þú vilt vita meira um Málfríði.

Innskrá
Áskriftarleiðir
Innskrá
Innskrá
Innskrá
NýskráningInnskráning