Get ég þýtt talað mál?
Þú getur bæði talað beint inn í viðmót Erlends og farið í gegnum Hreim fyrir þýðingu á töluðu máli.
Þegar um stuttar, tilfallandi þýðingar er að ræða er hentugast að tala beint inn í viðmót Erlends.
Smelltu á hljóðnemann í tækjastikunni neðst í Erlendi. Við það opnast lítill gluggi sem byrjar strax að hlusta. Þú getur stöðvað upptökuna hvenær sem er, hlustað á hana, eytt henni og byrjað aftur. Athugaðu að upptökurnar eru ekki geymdar á neinn hátt eftir vinnslu.
Veldu málið sem talað er í felliglugganum vinstra megin og smelltu á Talgreina. Við það færist textinn inn í ritilinn í Erlendi og þú getur þýtt hann. Athugaðu að notkunarkostnaður fellur til við notkun talgreiningarinnar í takt við verðskrá.
Þegar um mynd- og hljóðskrár er að ræða hentar best að fara í gegnum Hreim.
Hvernig get ég þýtt mynd- eða hljóðskrár?