Hvernig set ég skjátexta á upptöku sem ég hleð upp á Canvas?

Ef þú vilt einfaldlega fá skjátexta með upptökunni þinni á Canvas, án þess að hafa fyrir því að brenna þá inn í myndbandið, skaltu byrja á að sækja skjátextaskrána (.srt) beint úr Hreimi (sjá skref 1 hér að neðan). Ef Canvas-svæðið þitt leyfir að hlaða skjátextaskrá upp samhliða myndbandinu getur þú hlaðið .srt skránni upp ásamt myndbandinu sjálfu, og þá geta nemendur yfirleitt kveikt og slökkt á skjátextunum sjálfir í spilaranum ásamt því að nýta sér aðgengisstillingar spilarans.

Ef þú vilt þess í stað að skjátextar séu alltaf sýnilegir, án þess að nemendur þurfi að kveikja á neinu, þarf að „brenna“ textann inn í myndbandið sjálft áður en því er hlaðið upp. Hér er farið yfir allt ferlið, skref fyrir skref, frá því að sækja skjátextann úr Hreimi þangað til myndbandið er tilbúið fyrir Canvas.

1. Sæktu skjátextann (.srt) úr Hreimi

  1. Opnaðu upptökuna þína í Hreimi og láttu talgreininguna klára.

  2. Smelltu á Hlaða niður hnappinn í verkfærastikunni fyrir ofan textann (niðurörvartáknið).

  3. Undir Skráarsnið, veldu Skjátexti, merkt „.srt“, með lýsingunni „Fyrir myndbönd, spilara og klippiforrit“. (Ekki velja „Upptaka með skjátextum“. Sú skrá er ekki með brenndan texta, sjá útskýringu neðar.)

  4. Smelltu á Sækja neðst í glugganum.

  5. Skráin vistast sem .srt skjal, yfirleitt í niðurhalsmöppunni (Downloads) þinni.

2. Brenndu skjátextann inn í myndbandið

Notaðu VLC (frítt forrit, til á Windows og Mac) til að renna myndbandinu og skjátextaskránni saman í eina nýja myndbandsskrá þar sem textinn er alltaf sýnilegur.

Sjá nánari leiðbeiningar hér: Hvernig brenni ég skjátextana inn á myndbandið mitt?

3. Hlaðið upp á Canvas

Þegar VLC hefur lokið við að vista nýju skrána er hún tilbúin. Hlaðið henni upp á Canvas eins og hverju öðru myndbandi. Þar sem textinn er orðinn hluti af myndefninu sjálfu þarf hvorki að hlaða upp sérstakri .srt skrá né að nemendur geri neitt sérstakt til að sjá hann.

Af hverju ekki bara „Upptaka með skjátextum“ hnappinn í Hreimi?

Sá valkostur bætir skjátextum við sem sérstakri rás inni í myndbandsskránni (svokallað „muxing“), ekki ósvipað og að hafa auka hljóðrás. Margir spilarar (VLC, YouTube, Windows Media Player) geta sýnt þessa rás, en hún er ekki alltaf sjálfkrafa kveikt á. Margir vefspilarar, þar á meðal sá sem Canvas notar oft, sýna hana alls ekki. Til að tryggja að textinn birtist alltaf, óháð spilara, þarf að brenna hann inn eins og lýst er í skrefi 2.