Hvernig brenni ég skjátextana inn á myndbandið mitt?
Hreimur skilar þér skjátextunum sem sérskrá sem þú getur spilað með myndbandinu í öllum helstu spilurum. Þegar þú hefur talgreint myndbandið getur þú sótt skjátextana sem .srt skrá með því að smella á táknið fyrir niðurhal. Þú getur þá valið á hvaða tungumáli þú vilt sækja textann.
Þú getur líka sótt upptökuna með skjátextum með því að smella á þrípunktinn í efra hægra horni upptökunnar. Þetta þýðir ekki að skjátextarnir hafi verið brenndir inn í myndefnið.
Þú getur opnað skrána í myndbandsspilurum eins og VLC og Windows Media Player og þar getur þú valið skjátextana (subtitle track) fyrir skrána. Með þessari aðferð getur hver sem opnar upptökuna nýtt sér aðgengisstillingar í spilaranum, svo sem til að stækka letrið eða breyta lit og bakgrunni skjátextans.
Ef þú vilt að skjátextarnir séu alltaf hluti af myndefninu getur þú brennt þá inn á myndbandið með því að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:
Skref 1: Bættu myndbandinu þínu við í VLC
Opnaðu VLC Media Player.
Smelltu á Media > Stream….
Í glugganum, smelltu á Add og veldu skjátextaskrána þína (SRT skrána).
Skref 2: Bættu við textaskránni þinni
Hakaðu í reitinn Use a subtitle file.
Smelltu á Browse til að velja SRT-skrána þína.
Smelltu á Stream neðst.
Smelltu á Next í staðfestingarglugganum.
Skref 3: Stilltu úttaksstað
Veldu File sem áfangastað.
Smelltu á Add og veldu hvar þú vilt vista nýju myndbandsskrána.
Gefðu skránni þinni nafn og láttu skráarendinguna fylgja með (til dæmis, myndband.mp4).
Smelltu á Next.
Skref 4: Virkjaðu umkóðun og textavalkosti
Hakaðu við Activate Transcoding.
Veldu sniðmát og smelltu svo á skiptilykilstáknið til að breyta.
Farðu í flipann Subtitles.
Hakaðu við bæði Subtitles og Overlay subtitles on the video.
Smelltu á Save og svo á Next í fyrri glugganum.
Skref 5: Byrjaðu ferlið og bíddu
Smelltu á Stream til að byrja.
VLC mun keyra í gegnum myndbandið á meðan nýja skráin er búin til. Ekki loka forritinu á meðan á þessu stendur.
Eftir að umkóðun er lokið mun nýja myndbandið þitt vera með innfelldum texta.