Af hverju er skjátextinn hvítur og ólæsilegur í Windows Media Player?
Ef þú opnar .srt skjátextaskrá frá Hreimi í Windows Media Player og textinn birtist hvítur, jafnvel þótt þú hafir breytt litastillingum í Windows (Stillingar > Aðgengi > Skjátextar), er það ekki galli í skránni sem þú sóttir. Skjátextaskrár (.srt) innihalda einungis tímakóða og texta, engar litaupplýsingar. Liturinn ræðst alfarið af spilaranum sjálfum.
Windows Media Player hunsar oft þessar litastillingar fyrir skjátextaskrár sem er handvirkt hlaðið inn, ólíkt myndefni sem er með innbyggða skjátextarás. Þetta er þekkt hegðun í Windows Media Player, ekki eitthvað sem tengist Hreimi eða skránni sem hann skilar.
Lausnin: notaðu VLC í staðinn
VLC Media Player er frítt forrit fyrir Windows og Mac sem gefur þér fulla stjórn á útliti skjátextans, þar á meðal lit, stærð og bakgrunn.
Sæktu og settu upp VLC (ef þú ert ekki þegar með það).
Opnaðu upptökuna þína í VLC og hladdu inn .srt skránni frá Hreimi (Subtitle > Add Subtitle File).
Farðu í Tools > Preferences og veldu flipann Subtitles/OSD.
Þar getur þú stillt letur, lit og valið að setja útlínur eða svartan bakgrunn á textann, svo hann sjáist óháð því hvað er á bak við hann.
Útlínur eða bakgrunnur á textanum er yfirleitt öruggari lausn en að breyta einungis litnum, þar sem þá sést textinn óháð því hvort bakgrunnurinn er ljós eða dökkur.
Ef þú vilt að skjátextinn sé alltaf sýnilegur, óháð því hvaða spilara áhorfandinn notar, má einnig brenna hann varanlega inn í myndbandið. Sjá Hvernig brenni ég skjátextana inn á myndbandið mitt?