Hver er munurinn á samantekt, einföldu máli og auðlesnu máli?
Undir Textavinnsla í hægri hliðarstiku Málfríðar eru þrjár aðgerðir sem allar skila nýjum texta upp úr þeim sem þú setur inn. Þær eru ólíkar að umfangi og henta ólíkum lesendum. Hér er þeim raðað frá þeirri almennustu til þeirrar sértækustu.
Samantekt
Samantekt dregur aðalatriðin saman, oftast í punktum og undir fyrirsögnum, og sleppir því sem skiptir ekki máli fyrir kjarnann. Hún hentar þegar lesandinn þarf yfirlit frekar en allan textann, til dæmis fundargerð, glósur úr fyrirlestri eða yfirlit yfir langt skjal.
Einfalt mál
Einfalt mál endurskrifar textann á skýrara og einfaldara máli með algengari orðum. Það hentar breiðum hópi fólks: börnum og ungmennum, þeim sem læra íslensku og öllum sem vilja fá flókinn texta á mannamáli.
Auðlesið mál
Auðlesið mál gengur lengst. Textinn er endurskrifaður í samræmi við Handbók um auðlesið mál: stuttar setningar með einni hugsun í hverri, einfaldur orðaforði og löng orð brotin upp með miðjupunkti, til dæmis framkvæmda·stjóri. Það hentar þeim sem þurfa sem aðgengilegastan texta.
Lengd
Fyrir einfalt mál og auðlesið mál velurðu líka lengd. Óstytt er sjálfgefið og skilar öllum textanum, endurskrifuðum. Stytt skilar helstu atriðunum í samfelldu máli og Mjög stutt skilar kjarnanum, oftast í einni efnisgrein. Munurinn á styttum texta og samantekt er formið: samantekt er sett upp í punktum og undir fyrirsögnum en styttur texti er samfellt mál.
Sami textinn, þrjár niðurstöður
Munurinn sést best á dæmi. Hér er sami textinn sendur í allar þrjár aðgerðirnar, og einfalt mál og auðlesið mál eru óstytt.
Upphaflegi textinn
Á fundi stjórnar 12. mars var rætt um endurnýjun tölvubúnaðar starfsfólks. Fram kom að núverandi búnaður væri að stórum hluta kominn til ára sinna og að viðhaldskostnaður hefði aukist umtalsvert á síðustu tveimur árum. Samþykkt var að fela framkvæmdastjóra að afla tilboða frá að minnsta kosti þremur birgjum og leggja þau fyrir næsta fund, sem haldinn verður í apríl.
Samantekt
Fundargerð – Endurnýjun tölvubúnaðar
Yfirlit fundar
Dagsetning og tími: 12. mars
Tilgangur fundar: Ræða endurnýjun á tölvubúnaði starfsfólks.
Efni fundarins
Rætt var um endurnýjun á tölvubúnaði starfsfólks.
Núverandi búnaður er kominn til ára sinna.
Viðhaldskostnaður hefur aukist umtalsvert á síðustu tveimur árum.
Ákvarðanir og næstu skref
Verkefni: Afla tilboða í nýjan tölvubúnað.
Lýsing: Samþykkt var að afla tilboða frá að minnsta kosti þremur birgjum.
Ábyrgðaraðili: Framkvæmdastjóri.
Næstu skref: Framkvæmdastjóri leggur tilboðin fyrir næsta fund.
Skiladagur: Næsti fundur, sem haldinn verður í apríl.
Einfalt mál
Stjórnin hélt fund 12. mars og ræddi um nýjar tölvur fyrir starfsfólk. Margar tölvurnar eru orðnar gamlar og það hefur verið dýrt að gera við þær síðustu tvö ár. Stjórnin ákvað að framkvæmdastjórinn ætti að fá verðtilboð frá minnst þremur fyrirtækjum. Framkvæmdastjórinn kynnir svo tilboðin á næsta fundi í apríl.
Auðlesið mál
Stjórnin hélt fund 12. mars.
Á fundinum talaði stjórnin um tölvur fyrir starfsfólk.
Tölvurnar sem starfsfólkið notar eru gamlar.
Það kostar mikið að gera við tölvurnar.
Þess vegna vill stjórnin kaupa nýjar tölvur.
Stjórnin ákvað:
Framkvæmda·stjóri á að fá tilboð í nýjar tölvur.
Framkvæmda·stjóri á að fá tilboð frá 3 eða fleiri fyrirtækjum.
Næsti fundur er í apríl.
Þá sýnir framkvæmda·stjóri stjórninni tilboðin.
Hvernig vel ég?
Þarf lesandinn bara kjarnann, í punktum? Veldu samantekt.
Þarf lesandinn innihaldið á skýrara máli? Veldu einfalt mál.
Þarf lesandinn texta sem er einfaldaður eins mikið og hægt er og fylgir viðurkenndum reglum? Veldu auðlesið mál.
Ef þú vilt bæði stuttan og aðgengilegan texta geturðu valið einfalt mál eða auðlesið mál með lengdinni Stytt eða Mjög stutt.