Samantekt hjálpar til dæmis við að fá fundargerðir, hvort sem er upp úr skrifuðum fundarpunktum eða upptöku, eða að skilja betur flókið efni eins og vísindagrein eða frétt. Hægt er að senda texta beint inn í samantektina úr Málfríði, en einnig er hægt að tengja aðrar lausnir Málstaðar inn í lengra flæði. Þannig er hægt að senda upptöku af fundi inn í Hreim til talgreiningar og fá út uppskrifað handrit fundarins með tímakóðum. Þaðan má senda handritið til samantektar Málfríðar, og fá út hnitmiðaða fundargerð. Loks er mögulegt að senda fundargerðina til Erlends og fá hana þýdda á fjölmörg tungumál.