Hvernig nota ég afsláttarkóða?

Fylgdu leiðbeiningunum hér ef þú ert að stofna nýja áskrift:

Hvernig nota ég nemendaafslátt?

Ef þú ert þegar með áskrift getur þú fylgt eftirfarandi leiðbeiningum.
Til þess að virkja afsláttarkóða ferðu í valmyndina neðst til vinstri og smellir á Minn aðgangur. Þar smellirðu á hnappinn Stjórna greiðslum. Við það ferðu inn á greiðslugátt þar sem þú getur meðal annars séð greiðslusögu þína og sótt kvittanir.

Í greiðslugáttinni smellirðu á núverandi áskriftarleið. Þá færðu frekari upplýsingar um þína áskriftarleið. Á næsta skjá smellirðu á Breyta áskrift.

Loks slærðu inn afsláttarkóðann, smellir á svörtu örina og sérð þá upplýsingar um hvaða áhrif afsláttarkóðinn hefur á þína áskriftarleið. Með því að smella Uppfæra áskrift virkjarðu afsláttarkóðann. Til þess að virkja afsláttarkóða ferðu í efra hægra hornið og smellir á hringinn þar, og svo á Minn aðgangur.

Þar smellirðu á svarta hnappinn Stjórna greiðslum. Við það ferðu inn á greiðslugátt þar sem þú getur meðal annars séð greiðslusögu þína og sótt kvittanir.

Í greiðslugáttinni smellirðu á núverandi áskriftarleið. Þá færðu frekari upplýsingar um þína áskriftarleið.

Á næsta skjá smellirðu á Breyta áskrift.

Loks slærðu inn afsláttarkóðann, smellir á svörtu örina og sérð þá upplýsingar um hvaða áhrif afsláttarkóðinn hefur á þína áskriftarleið. Með því að smella Uppfæra áskrift virkjarðu afsláttarkóðann.

Athugaðu að ef um tímabundinn afslátt er að ræða fær áskriftin upprunalegt verð þegar tímabilinu lýkur.