Hvernig virkar hópstjórnborðið?

Hópstjórnborðið hjálpar þér að hafa umsjón með áskriftinni, meðlimum hennar og notkun.

Til þess að fá aðgang að hópstjórnborði þarf fyrst að stofna til til frjálsrar áskriftar. Þá geta eigendur og stjórnendur áskriftar nálgast hópstjórnborðið í notendavalmyndinni niðri til vinstri. 

Þú getur séð yfirlit yfir notkun hópsins í núverandi mánuði í spjaldinu Notkun í mánuðinum. Til að sjá notkun í fyrri mánuðum getur þú smellt á mánuðinn fyrir ofan spjaldið og flakkað milli mánaða.

Þú getur einnig stillt hámarksupphæð mánaðarnotkunar með því að smella á Stilla hámark. Ekki er hægt að stilla hámarkið lægra en uppsöfnuð notkun er á tímabilinu. Athugaðu að grunngjald á notanda á mánuði telst ekki inn í hámarkið; stillingin á við um notkun á lausnunum. 

Þú getur séð yfirlit yfir kostnað áskriftarinnar og sundurliðun hans með því að smella á spjaldið Heildarkostnaður.

Þú getur séð verð á notanda og magnafslátt með því að smella á spjaldið Notendur.

Þú getur séð upplýsingar um þína áskrift og næsta reikning með því að smella á spjaldið Núverandi áskriftarleið. Þar getur þú einnig hætt í áskrift.

Þú getur bætt við notendum í hópinn með því að smella á Bæta við notanda. Þá gefur þú upp netfang og það teymi sem viðkomandi á að vera í.

  • Eigandi: Stofnandi hópsins. Hefur aðgang að lausnum í Málstað og hópstjórnborði fyrir hópinn.

  • Stjórnandi: Hefur aðgang að lausnum í Málstað og hópstjórnborði fyrir hópinn.

  • Notandi: Hefur aðgang að lausnum í Málstað gegnum hópinn.

Þegar viðkomandi skráir sig inn á Málstað getur hann breytt yfir í hópaham fyrir hópinn í notendavalmyndinni neðst til vinstri.

Ég fékk boð í hóp en kemst ekki inn

Þú getur eytt notendum úr hópnum með því að smella á tannhjólið í réttri línu í notendalistanum og á Eyða úr hóp. Eftir að notanda hefur verið eytt úr hópnum mun hann ekki hafa aðgang að hópnum og getur ekki notað inneign í neinum lausnum. Notandinn telst virkur í mánuðinum þegar kemur að næsta reikningi.