Hvernig skora ég á andstæðing í keppnisham?
Ef þú ert Vinur Netskrafls getur þú skorað á aðra leikmenn í keppnisham, hvort sem þeir eru einnig Vinir Netskrafls eður ei.
Keppnishamur er valinn með rofa í glugganum sem kemur upp þegar þú gefur út áskorun. Á myndinni sést hvernig rofinn á að vera stilltur fyrir keppnisham:
Áskorun í keppnisham er merkt með áberandi merki, ljósaperu með rauðri útlínu: