Hvernig spila ég Netskrafl?
Í Netskrafli getur þú spilað skrafl við tölvu eða aðra leikmenn. Leikreglurnar eru eins og í hefðbundnu borðskrafli, en einungis eru leyfð orð sem fyrirfinnast í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls - og tveggja stafa orð samkvæmt lista Skraflfélags Íslands.
Í upphafi leiks hefur þú sjö stafaflísar sem sýndar eru í rekkanum fyrir neðan borðið. Ef þú átt leik (sýnt með rauðu flaggi við notandanafn þitt) getur þú lagt þær niður með því að draga þær með músinni (smella á flís, draga hana á réttan stað og sleppa músarhnappnum). Einnig má nota fingur til að draga flísar á spjaldtölvum og snertiskjám. Þú getur flutt flísar til á borðinu eða dregið þær til baka í rekkann ef þú færð bakþanka.
og Esc hnappurinn á lyklaborðinu senda allar flísar til baka í rekkann, en
og Backspace endurraða rekkanum af handahófi.
Stigaútreikningurinn er útskýrður sérstaklega hér.
Þegar þú hefur lagt niður orð eins og þú vilt hafa það smellirðu á græna hnappinn
. Andstæðingur þinn fær nú rauða flaggið, svarar með sínum leik og þá er röðin aftur komin að þér. (Tölvuþjarkarnir svara alltaf strax.) Nýjar flísar sem andstæðingur leggur niður eru sýndar með grænum lit á borðinu.
Ef þú getur ekki lagt niður orð og vilt sitja hjá smellirðu á appelsínugula hnappinn
. Þá færð þú ekki stig heldur á andstæðingurinn næsta leik.
Ef þú vilt skipta út flísum í rekkanum smellirðu á græna hnappinn
. Þú þarft að velja þær flísar sem þú vilt skipta með því að smella á þær. Þegar skiptin hafa farið fram færðu ekki stig og andstæðingurinn á leik. Ef færri en sjö flísar eru eftir í "pokanum" er ekki hægt að skipta.
Viðureign er lokið þegar síðasta flísin hefur verið lögð niður, eða ef báðir leikmenn hafa setið hjá þrisvar í röð (sex sinnum alls). Þú getur einnig gefið leikinn með því að smella á rauða hnappinn
.