Hvernig sía ég niðurstöður? Get ég valið í hvaða orðabókum er leitað?
Snara gerir auðvelt að finna þær niðurstöður sem þú hefur áhuga á.
Fyrir ofan leitarslána er hægt að velja stök tungumál og fá þá aðeins niðurstöður fyrir orðabækur fyrir það mál. Þú getur einnig smellt á síumerkið þar og handvalið þær orðabækur og uppflettirit sem þú vilt að leitað sé í. Þú getur bæði valið staka flokka, t.d. tungumál eða önnur uppflettirit, og valið stakar orðabækur í hvaða flokki sem er. Þú velur orðabækur eða flokka til leitar með því að haka við. Þú getur hvenær sem er endurstillt síuna með því að haka við Velja allt.