Hvernig breyti ég talgreindum texta í Hreimi?

Þegar þú hefur smellt á Talgreina og fengið talgreindan texta til baka eru nokkrar leiðir færar.

Þú getur farið í hægri hliðarstikuna og smellt á Yfirlestur undir Textavinnsla. Þá opnast textinn í Málfríði og þú getur fínpússað hann yfir í samfelldan texta. Í hliðarstikunni getur þú líka fengið samantekt á textanum, hvort sem er fyrir fundargerð eða glósur, eða komið honum yfir á einfalt mál til frekari dreifingar.

Ef þú vilt vinna beint með textann í Hreimi birtist hann sem samfelldar efnisgreinar undir upptökunni. Þú getur smellt hvar sem er í textanum og upptakan færist á samsvarandi stað, svo þú getur hlustað á upptökuna samhliða því sem þú lagfærir textann.

Ef þú vilt vinna með skjátexta í staðinn, til dæmis til að stilla nákvæmlega hvar hver skjátextalína byrjar og endar, smellir þú á „Breyta skjátexta“. Þá skiptist textinn upp í styttri búta með tímakóðum sem þú getur lagfært hvern fyrir sig. „Aftur í texta“ færir þig til baka í samfelldu efnisgreinarnar.

Upptakan sjálf getur fylgt með sem lítill, fastur spilari fyrir ofan verkfærastikuna á meðan þú vinnur, eða þú getur opnað hana í fljótandi glugga sem þú getur dregið til og stækkað eða minnkað eftir þörfum, án þess að hún hverfi af skjánum þegar þú skrollar í textanum. Hægt er að leita í textanum og sía eftir mælendum.

Hvað þýðir mælendagreining í Hreimi?

Get ég afritað texta beint úr Hreimi?

Hvaða skráarsniðum skilar Hreimur út?