Hvernig get ég nýtt mér auðlesið mál í Málfríði?
Auðlesið mál er íslenska sem hefur verið einfölduð eins mikið og hægt er svo að sem flest skilji hana. Það fylgir reglum um framsetningu og innihald sem Miðstöð um auðlesið mál heldur utan um í Handbók um auðlesið mál. Auðlesið mál er fyrst og fremst hugsað fyrir þau sem þurfa sem aðgengilegastan texta, til dæmis vegna fötlunar, en nýtist líka þeim sem eru að læra íslensku.
Málfríður getur endurskrifað texta á auðlesnu máli. Af þremur aðgerðum textavinnslunnar gengur auðlesið mál lengst: samantekt dregur saman kjarnann, einfalt mál gerir textann skýrari fyrir breiðan hóp og auðlesið mál fylgir reglum handbókarinnar.
Hvað einkennir auðlesinn texta?
Stuttar setningar. Ein hugsun í hverri setningu og oft ein setning í hverri línu.
Einfaldur orðaforði. Algeng orð eru valin fram yfir sjaldgæf.
Löng orð brotin upp með miðjupunkti. Löng samsett orð eru skrifuð með punkti milli orðhlutanna, til dæmis framkvæmda·stjóri, svo auðveldara sé að lesa þau.
Skýr uppsetning. Textinn er settur fram í röð sem auðvelt er að fylgja, án innskota.
Hvernig nota ég auðlesið mál?
Settu textann í ritil Málfríðar: skrifaðu hann, límdu hann inn eða hladdu upp skjali.
Opnaðu flipann Textavinnsla í hægri hliðarstikunni. Ef þú ert með eldri verkefni þar skaltu smella á Ný textavinnsla.
Undir Veldu aðgerð smellirðu á Auðlesið mál. Þá sérðu lýsingu á aðgerðinni og getur opnað Dæmi um úttak til að sjá hvernig niðurstaðan lítur út.
Veldu lengd. Óstytt er sjálfgefið og skilar öllum textanum á auðlesnu máli. Stytt skilar helstu atriðunum í samfelldu máli og Mjög stutt skilar kjarnanum, oftast í einni efnisgrein.
Smelltu á Byrja. Textinn þarf að vera minnst 20 stafir.
Niðurstaðan birtist í hliðarstikunni þegar vinnslan er tilbúin. Þaðan geturðu fært hana í ritilinn með Færa í ritil, hlaðið henni niður eða afritað hana.
Hvenær vel ég auðlesið mál frekar en einfalt mál?
Veldu Einfalt mál þegar þú vilt að fleiri skilji textann, til dæmis börn, ungmenni, þau sem læra íslensku eða almenningur sem vill fá flókinn texta á mannamáli.
Veldu Auðlesið mál þegar lesendurnir þurfa texta sem er einfaldaður eins mikið og hægt er og fylgir viðurkenndum reglum, til dæmis upplýsingar um réttindi, þjónustu eða leiðbeiningar sem eiga að vera öllum aðgengilegar.
Þú getur borið aðgerðirnar saman á sama textanum í greininni Hver er munurinn á samantekt, einföldu máli og auðlesnu máli?
Hvað þarf ég að hafa í huga?
Auðlesið mál í Málfríði byggir á Handbók um auðlesið mál, en ekki er hægt að tryggja að niðurstaðan uppfylli alla staðla handbókarinnar í hverju tilviki. Ef textinn á að birtast opinberlega sem auðlesinn texti, til dæmis á vef stofnunar, mælum við með að manneskja sem þekkir reglur auðlesins máls lesi hann yfir áður en hann er gefinn út. Miðstöð um auðlesið mál getur aðstoðað við það. Málfríður sparar mestan hluta vinnunnar, en lokaábyrgðin á textanum er þín.
Auðlesið mál telst til textavinnslu og er greitt fyrir það á sama hátt og fyrir samantekt og einfalt mál. Í ókeypis aðgangi geturðu sent allt að 400 stafi í einu. Þú getur kynnt þér áskriftarleiðir á áskriftarsíðunni.