Vafrinn þinn er of gamall fyrir Málstað. Uppfærðu vafrann í nýjustu útgáfu eða notaðu annan vafra (t.d. Safari, Chrome, Firefox eða Edge).
Verkfæri
  • Málfríður
    Yfirlestur og textavinnsla
  • Hreimur
    Talgreining og skjátextun
  • Erlendur
    Þýðingar milli tungumála
  • Snara
    Uppfletting í orðabókum
  • Lísa
    Ljóslestur skjala
Leikir
  • Netskrafl
    Krossgátuleikur
  • Gáta dagsins
    Dagleg krossgátuþraut
Miðeind ehf.

Fiskislóð 31, 101 Reykjavík

mideind.ismalstadur@mideind.is
Um MiðeindGreinar og pistlarStefna og tilgangurRannsóknir og tækni
ÁskriftNotkunarskilmálarPersónuverndHjálparmiðstöð

© 2026 Miðeind ehf.

Um Málstað

Kynntu þér verkfærin og leikina sem Málstaður hefur upp á að bjóða

Með Málstað hefur aldrei verið auðveldara að vinna með íslenskan texta og tal frá A til Ö með hjálp nýjustu máltækni. Málstaður sameinar allar helstu lausnir Miðeindar á einn samþættan vettvang.

Hvað geturðu gert á Málstað?

Lesið yfir og lagfært texta (Málfríður)
Flett upp í orðabókum (Snara)
Þýtt á fjölmörg tungumál (Erlendur)
Breytt tali í texta (Hreimur)
Yfirfært skönnuð skjöl og myndir yfir í texta (Lísa)
Umbreytt texta í samantekt eða í einfalt mál (Málfríður)
Boðið skemmtileg heilabrot á íslensku (Netskrafl)
Skjáskot af Málfríði
Skjáskot af Málfríði

Meira um verkfærin og leikina

Verkfæri

Málfríður
Yfirlestur og textavinnsla
Hreimur
Talgreining og skjátextun
Erlendur
Þýðingar milli tungumála
Snara
Uppfletting í orðabókum
Lísa
Ljóslestur skjala

Leikir

Netskrafl
Krossgátuleikur
Gáta dagsins
Dagleg krossgátuþraut
Miðeind
Miðeind

Miðeind ehf. er leiðandi á sviði máltækni- og gervigreindarlausna fyrir íslensku. Tilgangur og markmið okkar er að styðja íslenskt samfélag og styrkja stöðu tungumálsins með framsýnum lausnum í máltækni og gervigreind.

Miðeind gegndi veigamiklu hlutverki í framkvæmd fimm ára máltækniáætlunar stjórnvalda, þar sem áhersla var lögð á uppbyggingu máltækniinnviða. Undir máltækniáætlun unnum við náið með fjölda íslenskra fyrirtækja, stofnana og háskóla að öflun málfanga, uppbyggingu stoðtóla, málrýni og vélþýðingar, svo eitthvað sé nefnt.

Auk innlendra aðila hefur Miðeind átt í samstarfi við erlend tæknifyrirtæki á borð við bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI. Samstarf Miðeindar og OpenAI hefur snúist um að koma íslenskunni inn í risamállíkön OpenAI og kortleggja hvernig kenna má stórum mállíkönum lítil tungumál á sem skilvirkastan hátt.

Miðeind er einnig þátttakandi í Evrópusamstarfsverkefni er nefnist TrustLLM. Það lýtur að gerð stórs gervigreindarmállíkans fyrir germönsk tungumál. Verkefnið er unnið í samstarfi 11 fyrirtækja, háskóla og stofnana og er styrkt af Horizon-rannsóknaáætlun Evrópusambandsins.

Meðal innlendra stofnana sem Miðeind hefur átt í samstarfi við undanfarin ár eru Stafrænt Ísland og Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins. Við höfum einnig sérsniðið lausnir fyrir fyrirtæki á borð við Íslandsbanka og Veitur.

Hjá Miðeind starfar þéttur og öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og brennandi áhuga á máltækni og gervigreind. Þar er saman kominn einn stærsti hópur sérfræðinga á sviði gervigreindar sem fyrirfinnst á landinu öllu og óhætt að segja að fylgst sé náið með allri rannsóknarvinnu og tæknilegri framþróun innan sviðsins.

Nánar um Miðeind
Áskriftarleiðir
NýskráningInnskráning