Hvernig nýtist Erlendur mér?
Erlendur er öflug vélþýðingalausn sem gerir þér kleift að þýða texta hratt og örugglega á milli fjölda tungumála. Þú getur nýtt Erlend á margvíslegan hátt, allt frá einföldum textaþýðingum yfir í flóknari verkflæði þar sem lausnir Málstaðar vinna saman.
Það sem þú getur gert beint í Erlendi
Hrein textaþýðing
Þú getur límt inn texta og þýtt hann á milli allra helstu tungumála heims á augabragði.
Þýðingar með sérhæfðum orðalistum
Til að tryggja að sértæk hugtök, tæknimál og annað sé alltaf þýtt rétt getur þú nýtt sérhæfða orðalista til að gera þýðingarnar enn nákvæmari og sniðnar að þínum þörfum. Þú getur bæði nýtt orðalista Miðeindar og búið til þína eigin.
Hver er munurinn á mínum orðalistum, orðalistum hópsins míns og orðalistum Málstaðar?
Samþætting við Snöru
Þú getur flett upp í orðabókum Snöru innan Erlends, hvort sem er með því að tvísmella á orð í ritlinum eða að leita beint í hliðarstikunni. Þetta auðveldar þér að skoða samhengi orða, finna rétta merkingu og fínpússa textann samhliða þýðingunni.
Google Drive
Þú getur flutt skjöl beint inn úr Google Drive í stað þess að hlaða þeim upp handvirkt, og sent þýðinguna aftur út í Google Drive þegar hún er tilbúin.
Flóknari verkflæði og samspil við aðrar lausnir Málstaðar
Erlendur spilar vel saman við aðrar lausnir í Málstað og nýtist í flóknari verkflæði til að hjálpa þér að vinna þitt efni frá A til Ö.
Skjalaþýðingar
Í stað þess að afrita texta geturðu hlaðið upp heilum skjölum (s.s. Word skjölum), hvort sem er til að vinna áfram í ritlinum eða til að þýða beint og fá þýtt skjal á sama sniðmáti til baka.
Hvernig þýði ég skjöl með Málstað?
Úr skönnuðu skjali í þýddan texta
Ef skjalið þitt er skannað eða á formi myndar eða PDF-skjals ljóslesa Málfríður og Erlendur það sjálfkrafa fyrst þegar þú dregur það inn, og halda svo áfram með niðurstöðuna í sínu eigin verkflæði. Þú getur líka ljóslesið skjalið í Lísu fyrst og sent niðurstöðuna beint í Erlend til þýðingar.
Úr tali í þýddan texta
Þú getur tekið talgreint efni úr Hreimi, hvort sem það er á íslensku eða öðrum tungumálum, og sent það beint í Erlend til að fá þýddan texta. Athugið að fyrir beina þýðingu á skjátextum við myndbönd fer sú vinnsla fram innan Hreims, þótt Erlendur vinni þar bak við tjöldin. Ritillinn í Erlendi er ætlaður almennum textum og styður ekki séreigindi í skjátextum, svo sem tímakóða og mælendur.
Yfirlestur, samantekt og einföldun
Þú getur tekið íslenskan texta sem þú hefur unnið innan Málfríðar, hvort sem er til leiðréttingar, samantektar eða einföldunar, og fært í Erlend til þýðingar á önnur tungumál.
Á sama hátt getur þú líka þýtt erlendan texta yfir á íslensku í Erlendi og sent í Málfríði til yfirferðar á málfari, samantektar eða einföldunar.
Hvernig vinna lausnirnar saman frá A til Ö?
Hér eru nokkrar algengar samsetningar á lausnum Málstaðar sem notendur nýta sér í daglegu starfi:
Fundargerðir eða fyrirlestrar á erlendu máli
Upptaka af fundi eða fyrirlestri á erlendu máli er talgreind í Hreimi. Textinn er sendur í Erlend og þýddur á íslensku. Íslenski textinn er sendur í Málfríði til að búa til stutta og hnitmiðaða samantekt fyrir samstarfsfólk.
Alþjóðleg markaðssetning eða tilkynningar
Þú skrifar texta á íslensku og setur hann í Málfríði til yfirlestrar. Þegar textinn hefur verið fínpússaður sendir þú hann í Erlend til að þýða á önnur tungumál fyrir erlenda miðla eða fyrir erlenda útgáfu vefsíðunnar.
Úrvinnsla á erlendu efni
Þú tekur flókið efni á erlendu máli, jafnvel fleiri en einu, og þýðir á íslensku. Þú tekur íslensku textana og færð samantekt frá Málfríði til að sjá kjarnann í efnistökunum fljótt.